
Þegar krakkarnir mínir voru yngri bjó ég til bílabingó þegar við fórum að keyra um landið, oftast til Ísafjarðar. Það bingó var krotað á blað en hér er uppfærð og litríkari útgafa sem ég henti upp með aðstoð Canva. Spjöldin eru fjögur í A4 en það er líka sniðugt að prenta tvö spjöld á síðu og jafnvel plasta til að nota aftur.