This slideshow requires JavaScript.
Við höfum verið að vinna í nýju bókinni
Stærðfræðispæjararnir1 sem kom út í haust hjá Menntamálastofnun. Í kafla 3 um reikning eru blaðsíður með
vasareikni. Þessi vinna vakti mikla lukku og áhuga svo við ákváðum að æfa okkur meira.
Hér fyrir neðan eru tvö verkefni. Fyrra verkefnið hentar þeim sem eru óvanir að nota vasareikni og þurfa aðeins að átta sig á hvernig hann er notaður. Þegar við byrjuðum lékum við okkur aðeins og þau prufðu að slá inn fullt af tölum svo æfðum við okkur á að hreinsa og fá 0. Þegar við byrjuðum að reikna teiknuðum við reiti upp á töflu, jafnmarga og takkana sem ýta þurfti á. Því næst settum við tölur og tákn inn í reitina og prufuðum saman. Gott er að byrja á því að leggja saman tvær tölur undir 10 þ.e. að þurfa ekki að ýta á tvo takka á vasareikninum til að búa til tölu t.d. að ýta á 1 og 3 til að búa til töluna 13. Það sem við rákum okkur á er að minna á að ýta á = til að fá útkomuna og að hreinsa skjáinn til að fá 0 áður en við byrjum á næsta dæmi. Sumir áttu það til að ruglast á því hvort það væri talan 2 eða 5 sem væri á skjánum og getur þá hjálpað til að skoða tölurnar á tökkunum til að sjá hvernig 2 og 5 eiga að snúa þegar við erum ekki viss.
Verkefnið er tvær síður og með því að ljósrita báðu megin og brjóta í saman í helming verður til lítil bók.
Vasareiknir verkefni 1. Samlagning eins og tveggja stafa tölur.
Vasareiknir verkefni 2. Samlagning tveggja stafa tölur.
Like this:
Like Loading...